HEF veitur sjá um og reka vatnsveitu,- og fráveitukerfi á Djúpavogi. Með tilkomu Múlaþings árið 2020 var ákveðið að HEF veitur tæki við veitumálum sem áður voru á forræði Djúpavogshrepps. Kerfin ná til þéttbýlisins á Djúpavogi auk þess sem tæmingar á rotþróm í þéttbýli og dreifbýli eru á forræði HEF veitna.
Nú stendur yfir borun eftir heitu vatni á Djúpavogi á vegum félagsins. Hér fyrir neðan má fylgjast með framvindu verkefnisins.
Hægt er að hafa samband, við okkur, hér á heimasíðunni fyrir mál sem tengjast veitunum okkar
Borun eftir heitu vatni fyrir Djúpavog
HEF veitur standa nú fyrir borun tilraunavinnsluholu á jarðhitasvæðinu í landi Búlandsness en þar hefur þegar fundist jarðhiti. Hægt er að fylgjast með framgangi mála hér á síðunni - Borun við Djúpavog
fyrir áhugasama er svo hægt að lesa ágrip úr sögu jarðhitaleitar við Djúpavog
Vatnsveita Djúpavogs
Vatnsveitan sækir vatn sitt í Búlandsá ofan úr Búlandsdal. Þar voru áður brunnar í skriðufótum norðan árinnar en þeir lögðust af þegar skriða féll á svæðinu árið 2010. Nú er vatnið sótt í lítið lón stíflu sem er í ánni. Vatnsveitan þjónustar Djúpavog auk sveitabæja nærri lagnaleiðinni.
Sækja um nýja tengingu við vatnsveitu eða fráveitu á Djúpavogi
Á nýjum lóðum í þéttbýlum Múlaþings eiga HEF veitur tengistúta þeirra veitna sem í boði eru á hverjum stað við lóðarmörk. Til að tengjast veitunum þurfa lóðarhafar að sækja um tengingu á eftirfarandi formi. Starfsmenn HEF mæta á staðinn og tengja þegar tengigjöld hafa verið greidd.
Ertu að fara í framkvæmdir?
Áður en hafist er handa þarf að kynna sér hvort lagnir séu á framkvæmdasvæðinu til að koma í veg fyrir óþarfa tjón og óþægindi
Fyrirspurn vegna reikninga.
Ef þú þarft að fá útskýringu eða gera athugasemd við reikninga frá okkur er best að senda okkur línu á hef@hef.is eða hafa samband í gegnum síma 4 700 780
Tilkynning um bilun