Áformuð er breyting á stofnleið ljósleiðara á Efri Jökuldal.

Stuðlagil
Stuðlagil

Áætlað er að sambandslaust verði við ljósleiðara á Efri Jökuldal 3. september frá kl. 10:00. Þá er viðbúið að sambandslaust verði á öllum tengingum, þmt. farsímasendi á Háurð. Áætlað er að vinnan taki um tvær klukkustundir.

Sambandleysið er til komið vegna vinnu Orkufjarskipta við stofnlögn milli Fljótsdalsstöðvar og Hákonarstaða. Verið er að færa sambandið aftur á varanlega lögn en í júlí í fyrra var sett upp bráðabyrgðalögn vegna vinnu við háspennustreng á svæðinu.

Beðist er velvirðingar á óþægindum sem þetta kann að valda.

Starfsfólk HEF veitna.