Ársfundur Samorku, sem HEF veitur er aðili að, var haldinn þann 20. mars í Norðurljósum, Hörpu. Fundurinn í ár bar yfirskriftina Ómissandi innviðir og var kastljósinu beint að virði orku- og veituinnviða fyrir heimilin, fyrir atvinnulífið og fyrir efnahagslífið meðal annars.
einnig var fjallað um fólkið sem staðið hefur í ströngu við að halda úti orku- og veituþjónustu við ótrúlegar aðstæður í jarðhræringum á Reykjanesi. Við heyrðum sögur þeirra, sáum myndir sem teknar eru á vettvangi og ræddum stöðuna og framhaldið.
Fram komu:
Guðlaugur Þór Þórðarson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra
Kristín Linda Árnadóttir, stjórnarformaður Samorku
Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku
Gunnar Haraldsson, hagfræðingur Intellicon, kynnir nýja greiningu á þjóðhagslegum áhrif og áskorunum orku- og veitugeirans
Pallborðsumræður: Náttúruhamfarir á Reykjanesskaga
Elín Smáradóttir, yfirlögfræðingur OR stýrir umræðum.
Atli Geir Júlíusson, sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs í Grindavík
Björk Þórarinsdóttir, framkvæmdastjóri fjármála hjá HS Orku
Kjartan Már Kjartansson, bæjarstjóri í Reykjanesbæ
Páll Erland, forstjóri HS Veitna
Pallborðsumræður: Efnahagsleg þýðing orku- og veituinnviða
Ingunn Agnes Kro, stjórnarformaður RARIK, stýrir umræðum.
Baldvin Björn Haraldsson, stjórnarformaður Elements
Gunnar Haraldsson, hagfræðingur Intellicon
Jón Skafti Gestsson, hagfræðingur Landsnets
Sigríður Ingibjörg Ingadóttir, hagfræðingur BSRB
Raddir starfsfólks sem unnið hefur við erfiðar aðstæður á Reykjanesskaga