Í gær varð vart við grugg í neysluvatni á Seyðisfirði. Orsök þess er að í gær voru gerðar prófanir á brunahönum á Seyðisfirði á nokkrum stöðum. Meðal þeirra voru nýjir brunahanar sem aldrei höfðu verið prufaðir og lagnir við þá eftir uppsetningu ekki skolaðar fyrr en nú. Þessu fylgir að grugg hefur komist af stað og gæti komist inn í heimæðar til notenda. Því gæti þurft að láta renna í einhverja stund til að skola betur úr kerfinu.
Eftir því sem við best vitum er gruggið bundið við dreifikerfið t.d. við Vallagötu þar sem nýr brunahani var skolaður. Gruggið kemur ekki úr vatnsbólinu og ætti vatnið að öðru leiti að vera í lagi.
Við hvetjum notendur til að láta renna úr krönum hjá sé verði þeir varir við grugg. Einnig hvetjum við til þess að notendur tilkynni slík atvik til okkar hjá HEF verði þeir varir við slíkt. Það er hægt með tölvupósti til hef@hef.is og í síma 4 700 780. Með því áttum við okkur betur á umfangi atvika sem þessu.