Hreinsun rotþróa í Múlaþingi - Skriðdalur

Rotþróartæmingarbíll
Rotþróartæmingarbíll

Áætlað er að hreinsa rotþrær í Skriðdal á næstu dögum. HEF veitur standa fyrir losun á 3ja ára fresti. Þessi losun gjaldfærist samkvæmt gjaldskrá HEF veitna. Komi til þess að hreinsa þurfi rotþrær utan reglulegar hreinsunar ber viðkomandi kostnað af henni.

Mikilvægt fyrir eigendur rotþróa að huga að eftirfarandi þáttum:

  • Læst hlið á þeim svæðum sem tæma á verða að vera opin þannig að þjónustuaðili komist óhindrað að rotþróm.
  • Rotþrær þurfa að vera aðgengilegar hreinsibíl og vel sýnilegar / merktar.

Við munum auglýsa dagsetningar hreinsana á heimasíðunni okkar og á samfélagsmiðlum þegar nær dregur.

Nánari upplýsingar má fá í síma 4 700 780 eða með því að senda póst á netfangið nigar@hef.is

Starfsfólk HEF og Hreinsitækni.