Uppfært 22.10. kl. 17:30
Viðgerð á ljósleiðaranum við Ketilsstaði er lokið. Viðskiptavinir eru beðnir velvirðingar á óþægindum.
Ef einhverjir eru enn sambandslausir er fólki bent á að endurræsa endabúnað (router). Ef það dugar ekki til skal að hafa samband við HEF veitur í síma 4 700 780
----------------------------------
Um kl. 17 í dag varð slit á ljósleiðara við bæinn Ketilsstaði í Hjaltastaðaþinghá. Allir staðir þar fyrir utan að Unaósi eru sambandslausir. Verið er að taka til nauðsynleg aðföng til viðgerða sem hefst í birtingu í fyrramálið.
Beðist er velvirðingar á óþægindum vegna þessa.