10.05.2024
Uppfært: Lokaniðurstöður staðfesta frumniðurstöður. Ekki er þörf á að sjóða neysluvatn lengur við Strandarveg.
Frumiðurstöður úr sýnatöku frá því á miðvikudag sýna að ekki gætir lengur kólígerlamengunar í vatni við Strandarveg. Því er óhætt fyrir öll að drekka vatnið og ekki þörf á því að sjóða neysluvatn. Endanlegar niðurstöður berast eftir helgi.
06.05.2024
Sýni sem tekin voru á fimmtudaginn 2. maí sl. við Strandaveg á Seyðisfirði sýna að örverumengun í neysluvatninu fer minnkandi. Fjöldi kólígerla í sýnunum var innan við 20 í 100 ml og því er ekki talið nauðsynlegt að sjóða vatnið fyrir neyslu. Engir e.coli gerlar greindust í sýnunum.
Viðkvæmir neytendur, eru hins vegar hvattir til að sjóða neysluvatn í varúðarskyni. Til viðkvæmra notenda teljast, börn undir 5 ára aldri, fólk með viðkvæmt ónæmiskerfi, eldra fólk, barnshafandi konur og fólk með fæðuofnæmi eða fæðuóþol.
02.05.2024
Vegna vinnu við tengingu á nýjum ljósleiðara við Gilsá verða truflanir á netsambandi í Skriðdal miðvikudaginn 8. maí. Gert er ráð fyrir að vinnan taki allan daginn en hver notandi getur búist við u.þ.b. 30 mínútna rofi á netsambandi.